Ferill 105. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 105 . mál.


423. Breytingartillögur



við frv. til l. um afnám laga nr. 35/1992, um forfallaþjónustu í sveitum o.fl.

Frá landbúnaðarnefnd.



     1 .     Við 3. gr. Greinin orðist svo:
                  Lögin öðlast gildi 1. janúar 1995.
     2 .     Við bætist tvö ákvæði til bráðbirgða er orðist svo:
                   a .     (I.)
                            Þrátt fyrir ákvæði laganna skal Framleiðsluráð landbúnaðarins ljúka innheimtu þeirra gjalda til forfallaþjónustu í sveitum sem lögð hafa verið á fyrir 1. janúar 1995.
                   b .     (II.)
                            Stjórn forfallaþjónustu í sveitum skal þrátt fyrir ákvæði 1. gr. starfa áfram til 1. apr íl 1995 og sjá um að ljúka uppgjöri á málefnum forfallaþjónustunnar og að útdeila tekjuafgangi til framleiðenda.
                            Réttur einstakra framleiðenda til endurgreiðslu er háður því að viðkomandi fram leiðandi hafi greitt til þjónustunnar eftir 31. ágúst 1994. Endurgreiðsla skal fara fram í sömu hlutföllum og hver og einn framleiðandi greiddi í Búnaðarmálasjóð vegna þjón ustunnar á því tímabili.